fbpx

auðveldara líf

Garðsláttur í áskrift

Reglulegur garðsláttur er grundvöllur allra fallegra garða. Það er ódýrasta og einfaldasta leiðin til þess að viðhalda fallegri grasflöt. Við bjóðum upp á áskrift á garðslætti á 2 og 3 vikna fresti.

Garðsláttur

Garðsláttur

Reglulegur Garðsláttur

Reglulegur garðsláttur hefur marga kosti, þar á meðal minnkun á mosamyndun, stöðugleika á áferð grassins, hæðin helst í réttri lengd og lýtur vel út allt sumarið.

Vandamálið

Vandamálið er að margir hafa einfaldlega ekki tímann og/eða líkamann í að slá garðinn sinn reglulega, viðhalda tækjabúnaði og fara með úrganginn á endurvinnslustöð. 


Í sameiginlegum görðum og húslóðum er einnig algengt að öll vinnan við garðverk fellur á einn einstakling sem gerir alla vinnuna sem skapar ósamlyndi í húsfélögum.

Lausnin

Lausnin er að útvista garðslættinum til fagaðila sem halda utan um skipulag á garðinum, sjá um reglulegan slátt á grasfletinum ásamt því að losa við allan úrgang á ábyrgan máta.


Útkomunar eru glaðir garðar og ennþá glaðari garðeigendur.

Garðsláttur

Vönduð Vinnubrögð:

  • Hraði
    Við höfum verið að slá garða frá barnsaldri. Við erum vanir að slá garða, stóra sem smáa og notum aðeins besta vélbúnað sem kosta er á völ.
  • Vandvirkni
    Við leggjum okkur fram við að skila garðinum í eins fallegu ástandi og við getum. Grasflöturinn er sleginn og kantar eru snyrtir. Allar stéttar eru hreinsaðar ef gras eða lauf hafa fallið á þær.
  • Lífræn Ræktun
    Við notum einungis lífrænan áburð og jarðvegsbætiefni. Betra fyrir grasið og betra fyrir Plánetu Jörð. 
  • Skýr Samskipti
    Samskipti skiptir okkur miklu máli, við leggjum upp úr því að vera heiðarlegir og skýrir í öllum samskiptum. Þú ert okkur mjög dýrmæt/ur!

Algengar spurningar

  • Garðsláttur

Hversu oft á að slá yfir sumarið?

Algengast er að sláttur sé u.þ.b. 14 daga fresti frá miðjum maí til mánaðamóta ágúst og september. Eða um 7 skipti yfir sumarið. 

Við mælum ekki með þeirri hugmynd að slá grasflötinn sjaldnar til þess að spara sér kostnað. Lokaútkoman verður ekki jafn slétt og falleg og hætta er á að mosi fari að vaxa á grasfletinum.

Hvað er innifalið í garðslætti í áskrift?

Verðtilboð eru gefin eftir að grasflöturinn og garðurinn hefur verið metinn með tilliti til stærðar og umfangs verksins.


Innifalið í þeim verðum er allur kostnaður við sláttinn s.s; tímavinna við sláttinn, tækjakostnaður, úrgangslosun, akstur til og frá staðnum ásamt notkuninni á bílnum.

Er hægt að bæta við áburðargjöf ásamt garðslætti?

Við bjóðum upp á lífrænan áburð á grasflötinn 2-3 yfir sumarið meðfram garðslættinum.

Því meiri ást sem grasflöturinn fær því fallegri verður hann. Reglulegur garðsláttur og regluleg áburðargjöf eflir grasflötina og jarðveginn undir henni, ver flötina gegn mosa og styrkir rótarkerfið.

Við notum einungis lífrænan áburð og jarðvegsbætiefni. Betra fyrir grasið og betra fyrir Plánetu Jörð.  


Viltu fá garðslátt í áskrift?

Við komum til þín og gefum þér tilboð þér að kostnaðarlausu.